Debuit tónleikar Gunnu Láru trúbadorínu









Ég varð fyrir loftárás á fuglaskoðunarnámskeiði um daginn... náði því á mynd.
Fugl dagsisns, eða kannski frekar mánaðarins miðað við bloggtíðnina
er susmé kría. Hér milli Hellissands og Rifs er eitt stærsta Kríuvarp landsins og Evrópu og vissara að vera með hjálm á hausnum ef maður ætlar að fara þar um! ![]()

Ég rakst á hrafnslaup í þjóðgarðinum fyrr í vor og komst þannig að honum að ég sá að þar höfðu verið lögð 6 egg. Svo kíkti ég í gær og þá höfðu eggin breyst í þessa bráðmyndarlegu og svipfögru hrafnsunga. Þeir voru að vísu bara 3 í laupnum þannig að samkvæmt mínum útreikningum hefur hver þeirra komið úr 2 eggjum.


Patrick Kasozi var fæddur í Uganda árið 1998 og lést í janúar s.l. 8 ára gamall. Ég fékk bréf frá ABC í dag um að hann hefði látist af slysförum, fengið slæmt höfuðhögg og hlotið miklar heilablæðingar sem drógu hann á endanum til dauða.
Patrick var sprækur og góður strákur. Honum fannst stærðfræði skemmtilegasta fagið í skólanum og besta íþróttin hans var fótbolti. Honum fannst gaman í skólanum, ekki síst af því að hann fékk skólabúning til að vera í. Í bekknum hans voru 15 strákar og 15 stelpur. Patrick átti fjölskyldu sem er afar fátæk því pabbi hans er sjúklingur, en Patrick gat stundað skóla og notið heilsugæslu vegna hjálpar frá ABC. Hann þurfti auðvitað að hjálpa til heima þegar skólanum lauk en það sem honum fannst skemmtilegast við heimilisstörfin var að safna eldiviði. Að loknu dagsverkinu voru Matooke og baunir yfirleitt á borðum hjá fjölskyldunni.
Patrick var fallegur og góður drengur sem langaði til að verða lögfræðingur þegar hann yrði stór. Hann var góður námsmaður og með þeim efstu í bekknum sínum og ásamt stærðfræðinni var hann mjög góður í félagsfræðigreinum. Patrick hefði örugglega orðið góður lögfræðingur og ég sé hann fyrir mér berjast fyrir réttindum landa sinna og barna sem voru í sömu stöðu og hann.
Þessa fallegu mynd teiknaði Patrick handa mér af þorpinu sínu og sendi mér í jólakorti s.l. jól. Framan á kortinu eru sebrahestur og pálmatré sem sjálfsagt voru daglega fyrir augum hans. Á myndinni eru að mér sýnist strætisvagn, kókospálmar og geit bundin við tré. Þarna eru líka leirhús með stráþaki og inni í öðru húsinu sjást húsgögnin, 4 mottur til að sofa á, hlóðaeldstæði og motta til að matast við. Í þorpinu er líka stór hundur sem stendur hjá mömmu og pabba og strákur að leika sér með fótbolta.
Elsku Patrick, vonandi hefur þín stutta ævi verið hamingjurík. Blessuð sé minning þín.